• Vandaðar flísalagnir,
    fagmenn í fremstu röð

  • Viðhald og breytingar,
    unnið af fagmennsku

  • Atvinnu- og íbúðarhúsnæði,
    nýbyggingar og viðhald

  • 1
  • 2
  • 3

Velkomin á heimasíðu Ara Oddssonar ehf.

Ari Oddsson ehf. er byggingaverktaki sem hefur mikla reynslu í viðhaldi á fasteignum hvað varðar tré og múrverk, lekavandamálum og sérhæfðum flóknum verkefnum. Ari Oddsson ehf. hefur komið að mörgum verkefnum í gegnum tíðina stórum sem smáum og með reynslu sinni leiðbeint viðskiptavinum og bent á þær lausnir sem í boði eru og um leið komist hjá óþarfa kostnaði. Endilega skoðaðu síðuna og hafðu samband til að fá frekari upplýsingar, ráðgjöf eða tilboð þér að kostnaðarlausu.

  • Allt
  • Innanhúss
  • Nýsmíði
  • Utanhúss
  • Viðhald
  • Sjálfgefið
  • Titill
  • Dagsetning
  • Slembi
hlaða meiru haltu SHIFT inni til að hlaða öllu hlaða öllu

Flísalagnir

Flísalagnir er ein af sérgreinum okkar. Það borgar sig að vanda vel til verka þegar flísalagnir eru annarsvegar til að útkoman verði góð. Undirvinnan fyrir flísalagnir er ekki síður mikilvæg en lögnin sjálf til að niðurstaðan verði sem best.

Fyrir flísalögn er byrjað á að mæla viðkomandi rými, svo deiling flísa komi sem best út. Flota getur þurft gólf ef undiragið er ekki nægilega rétt eða slétt. Þess þarf að gæta að flöturinn sé hreinn áður en bindigrunnur er borinn á og að lokað hafi verið fyrir gólfhita. Á baðherbergi og önnur votrými er nauðsynlegt að borin sé á gúmmíkvoða og staðsettur þensluborði þar sem þess er þörf, áður en flísalaögn hefst.

Fúgun eftir flísalögn hefst þegar flísalímið hefur harðnað. Eftir fúgun og hreinsun flísa er borið Silicon í þensluraufar til sveppa- og mygluvarna.

Flísalagnir starfsmanna hjá Ara Oddssyni ehf. eru unnar samkvæmt ítrustu kröfum og við tökum ábyrgð á okkar vinnu. 

/flisalagnir/flisalagnir/flisalagnir/flisalagnir/flisalagnir/flisalagnir/flisalagnir/flisalagnir/flisalagnir/flisalagnir/flisalagnir

Hvað segja viðskiptavinir okkar?

  • Það er alveg ótrúlegt hvað þessir menn geta gert, eldsnöggir og vandvirkir og sérstaklega sanngjarnir og gott að eiga viðskipti við þá!
  • 1
  • 2
  • 3